Karamellueplabaka
Ég gleymdi að taka mynd af þessari.
Karamellueplabaka
1 plata tilbúið bökudeig (eða heimagert deig úr 250 g af hveiti, 125 g af smjöri, örlitlu salti og sykri og ísköldu vatni eftir þörfum)
4 epli (ég notaði Pink Lady, Jonagold væru t.d. fín líka)
5 msk rjómi
75 g smjör
150 g púðursykur
Ofninn hitaður í 200°C. Deigið lagt yfir bökumót, bökunarpappírshringur lagður yfir og eitthvert farg sett á hann (t.d. þurrkaðar baunir eða hrísgrjón; ef notað er heimagert deig þarf náttúrlega að fletja það út fyrst en ég þarf ekki að taka það fram, er það?). Bakað neðst í ofni í 12-15 mínútur en þá er formið tekið út, bökunarpappírnum með farginu lyft og það fjarlægt og bökuskelin sett aftur í ofninn og bökuð í 5 mínútur í viðbót. Tekið út og hitinn lækkaður í 180°C.
Á meðan eru eplin flysjuð, kjarnstungin og skorin í bita. Rjómi, smjör og púðursykur sett í pott við meðalhita, hrært þar til allt er bráðið og samlagað og síðan látið sjóða í 2-3 mínútur, þar til komin er karamellusósa. Tekið af hitanum, eplabitarnir settir út í og hrært vel og síðan er öllu saman hellt í bökuskelina og bakað í um 20 mínútur, eða þar til eplin eru meyr.
Það getur verið gott að setja álpappír yfir kantinn á bökuskelinni svo að hann verði ekki of dökkur. Sem ég gerði ekki í gærkvöldi því að það reyndist álpappírslaust og þess vegna er bakan sem er niðri í kaffistofu núna einmitt dálítið dökk á jöðrunum.