Sérrí ...
Ég var nærri búin að klúðra sérríferðinni með einstökum utanviðmighætti - en með guðs hjálp og góðrar konu reddaðist það nú allt saman. Þannig að ég fer til Andalúsíu eldsnemma á laugardagsmorgun. Og veitir bara ekkert af smáafslöppun áður en ég helli mér af krafti í þýðingar og fleira.
En fyrst eru það kleinuhringirnir. Og ástarpungar og svoleiðis.